fimmtudagur, 9. október 2014

Æfing dagsins

Langði bara að setja inn stutta færslu í dag.
Er hrikalega peppuð, var að koma af svakalega erfiðri æfingu hjá einkaþjálfaranum mínum þar sem ég átti líka gott spjall við hana.  Var að fá úr mælingunum mínum eftir fyrsta mánuðinn með henni. Missti 3,9 kg og 1,35% í fitu en ég vildi meira. Þannig að ég mætti á æfingu frekar fúl við sjálfa mig eftir að hafa ekki fengið betri niðurstöður úr mælingunni.  En þjálfarinn minn fullyrti að þetta væri eðlilegt því að líkaminn væri að upplifa ákveðið aðlögunarferli og sjokk þar sem að ég fór frá því að hreyfa mig aldrei og borða mjög óhollt í mjög reglulega hreyfingu og mun hollari fæðu.  Hún sagði jafnframt að ég mætti búast við mun betri tölum eftir þennan mánuðinn - og það er nákvæmlega það se ég ætla að láta gerast.  Ég ætla á eftir að fara að kaupa mér bók og skrá niður allt sem ég borða, þó ég nenni ekki að vigta það allt. Ég held að það sé gott tæki fyrir mig til að fylgjast betur með því sem ég borða og hafa betra aðhald í matarræðinu. Ég veit nefnilega að ég er að gera allt rétt í ræktinni og hreyfingunni en það skilar víst ekki 100% árangri ef að mataræðið er ekki í takti við hreyfinguna. Og ég er spennt yfir þessu, ég veit að ef ég verð sjúklega dugleg mun þetta skila mér tölum sem ég verð sáttari við í lok þessa æfingartímabils.  Ég ákvað nefnilega að taka 1 mánuð í einkaþjálfun í viðbót og mun svo líklegast færa mig yfir í fjarþjálfun eða allavega vigtun hjá henni einfaldlega vegna þess að þetta kostar pening og ég þarf að reyna að spara aðeins.


Í dag tók ég mjög skemmtilega, en ógeðslega erfiða æfingu hjá einkaþjálfaranum.  Hún vildi að við æfðum í dag með svona tabata ívafi, þar sem að maður æfir í 20 sek og hvílir í 10.  Við tókum súpersett, sem eru tvær æfingar til skiptis í 20 sek með 10 sek hvíld á milli og endurtekningin fjórum sinnum.  Ég gerði 5 slík sett og hélt ég myndi annað hvort deyja, æla eða líða yfir mig.  En það var svo gott þegar þetta var búið, ég var svo stolt.  Við erum byrjaðar að bæta þyngd á lóðin mín í öllum æfingum sem ég er að gera, sem er mjög skemmtileg tilfinning.  Eitthvað sem ég hef aldrei upplifað áður því í gegnum tíðina þegar ég hef verið að lyfta hef ég annað hvort verið of góð við mig og ekki haft sjálfsagann í að lyfta þyngra en mér þótti "passa innan þægindarammans" eða þá ég hef ekki tollað nógu lengi í ræktinni í þau skipti og einfaldlega gefist upp áður en ég gat farið að þyngja.  Eitt af settunum voru líka sprettir á hlaupabrettinu í 20 sek og hvíld í 10 sek.  Það er eitthvað sem ég gerði líka hjá þjálfaranum í annarri vikunni minni, nema þá hljóp ég á aðeins minni hraða og var við það að kafna þegar ég var búin að endurtaka hlaupin í 8 skipti.  Þess vegna var svo gaman að sjá að allir spinningtímarnir sem ég hef farið í undanfarnar vikur (vanalega 3-4 á viku) með systur minni eru farnir að borga sig í betra þoli.  Ég er handviss um það að með þessu áframhaldi og ef ég bæti inn smá hlaupum í hverri viku verð ég farin að hlaupa 5 km eftir mánuð eða tvo án þess að deyja við það.  Draumurinn er að geta hlaupið 10 km fyrir afmælið mitt 30.apríl, en það er langtíma markmiðið mitt. Mér hefur alltaf fundist gaman og gott að hlaupa, þegar ég er í formi til þess. Þannig að núna hlakka ég til að komast í betra form svo ég geti farið út að skokka án þess að þurfa sífellt að stoppa til að hvíla mig inn á milli. Það er bara einhvern veginn svo frelsandi tilfinning að geta farið út, sérstaklega á kvöldin, með ipod í eyrunum og hlaupið bara. Hlaupið bara með eigin hugsunum.  Ég fæ gæsahúð bara við tilhugsunina og hlakka til að geta farið að gera það.  

Þetta átti að vera stutt færsla, en varð aðeins of löng. Ætla að demba mér í smá lærdóm og stúss, svo ætla ég að fara í spinningí kvöld með Laufey. Ná síðustu æfingunni með henni áður en hún fer í burtu í 11 daga í sólina helvísk :)

Takk í dag!
xx Jónína

Engin ummæli:

Skrifa ummæli