Hæææ!
Bara eitthvað svona almennt röfl frá mér í dag. Ég ákvað að prófa 5:2 föstuna sem er svo vinsælt í dag. Vinkona mín er búin að vera á þessu matarræði í næstum tvo mánuði núna og líkaði svo vel þannig að ég ákvað að slá til fyrir tveimur vikum. Fyrstu tveir dagarnir sem ég fastaði voru helvíti, ég hélt ég myndi ekki klára daginn. En svo verður þetta auðveldara. Þetta er ekki þannig að maður megi ekki borða neitt, heldur hefur maður 500kal þröskuld yfir daginn sem maður má skipta eins og manni hentar niður í máltíðir. Mér finnst best að borða í hádeginu og svo aftur svona ca 5-6 leytið. Ég hafði svolitlar áhyggjur af því að þetta yrði mjög erfitt þegar maður er að æfa mikið, en ég hef farið tvisvar sinnum á föstu-dögum og tekið tvær æfingar og það hefur ekki verið neitt vesen. Þannig að ég bíð spennt og hlakka til að sjá hvort að þetta breytir einhverju svona til lengri tíma litið en mér finnst þetta mjög gott til þess að tileinka mér sjálfsstjórn því á þeim dögum sem ég fasta veit ég nákvæmlega hvað ég má og ætla að borða og verð að standa við það því að ég má ekki fara yfir kaloríufjöldann. Þetta vonandi hefur það svo með sér í för að það verði auðveldara að halda sjálfsstjórninni þegar einhver óhollustulöngun bankar upp á á þeim dögum sem ég er ekki að fasta.
Ákvað að henda inn einni vel ferskri mynd af mér síðan í dag. Fór s.s. á æfingu hjá þjálfaranum mínum klukkan 9 í morgun og tók þar mjög erfiða æfingu eins og alltaf en ákvað svo að fara í spinning með vinkonu minni klukkan hálf6 í kvöld líka. Klukkutíma spinning hjá uppáhalds spinningþjálfaranum mínum og það er ekki þurr blettur á líkamanum þegar maður labbar þaðan út. Ég elska spinning. Mér finnst ekki rosalega gaman að taka brennsludaga í ræktinni þar sem ég hangi á stigavélinni og skíðavélinni til skiptis að rembast við tímann og að halda það út í klukkutíma. En þegar maður fer í klukkutíma spinning hefur maður ekkert val, þú ert að brenna allan tímann á fullu í takt við tónlistina og þjálfarann og tíminn líður svo sjúklega hratt. Þetta er allavega að mínu mati skemmtilegasta leiðin til að taka brennslu, alveg án nokkurs vafa. Ég þarf reyndar að vera duglegri að taka brennslu eftir lyftingar og reyna að bæta smá hlaupum inn í brennslurútínuna því að ég vil vinna upp almenntilegt "skokk-þol" svo ég geti farið að hlaupa almennilega. Ég er bara að taka svo hrikalega á því í lyftingunum að ég hef varla orku í meira eftir 45-60 mín lyftingarsession að ég vil frekar fara aftur seinna yfir daginn í spinning, sem að hentar mér vel allavega núna en bæti svo hinu við hægt og rólega líka.
Já, ég er allavega vel peppuð þessa dagana. Fór í Bónus í dag til að bæta á úrvalið í ísskápnum og ætla svo að elda kjúkling og eitthvað gott meðlæti á morgun til að eiga annað kvöld og á fimmtudaginn. Ég er að vinna á fimmtudagskvöldið og ég finn það að ég verð að venja mig á það að elda nóg til að eiga með mér í vinnuna, því að þar fyrst eru freistngarnar. Yfirleitt er eldaður svo góður og ekki svo hollur matur, og alltaf til eitthvað til að narta í þannig að ég þarf að passa mig sérstaklega vel þar. Það hefur gengið misvel, eins og síðustu helgi þá var ég að vinna mjög langar vaktir og var ekki búin að skipuleggja mig nógu vel til að ég ætti með mér nesti fyrir alla dagana og þá er auðvelt að renna út af breinu brautinni. Ætla þess vegna að taka mig vel til í andlitinu og passa upp á það að eiga alltaf kjúkling eða fisk eða boozt til að taka með mér í vinnuna til að borða í staðinn fyrir að detta í matinn sem er þar á boðstólnum.
Annars held ég að þetta sé bara komið gott af röfli í dag - þangað til næst - lovjú mamma (þú ert sú eina sem veist af þessu bloggi ;*)
xx Jónína
Engin ummæli:
Skrifa ummæli