laugardagur, 18. október 2014

Lífið er gott

Hæhæhæ!
Já lífið er svei mér þá bara ansi gott! Þessi vika er búin að vera bjútífúl! Er búin að vera sjúklega dugleg í ræktinni og matarræðinu og er bara rosalega stolt af mér í dag.  Það er laugardagur og ég byrjaði þessa helgi á að mæta í spinning eins og ég hef gert síðastliðnar fimm helgar að þessari meðtalinni og mér finnst ekkert eins gott eins og að byrja helgina svoleiðis.  Ég er búin að ákveða lyftingardaginn minn á morgun og það er ekki séns að ég láti neitt stoppa mig.  Eftir að ég hef farið í ræktina á morgun er ég búin að fara 7 sinnu i ræktina í vikunni þrátt fyrir að hafa miss út tvo daga vegna tíma- og skipulagsleysis þannig að ég hef algjörlega náð að vinna það upp.  Þannig að ég er bara rosalega sátt við mig.  Vigtin mín líka, sem er hægt og rólega að verða vinkona mín. Hún sýndi -6,3 kg í morgun og það er svo stutt í að ég nái fyrsta markmiðinu mínu og það er rosalega góð tilfinning sem hvetur mig til þess að halda ótrauð áfram.  Skemmtilegast er þó þegar maður sjálfur fer að sjá mun.  Ég sé alltaf fyrst mun á andlitinu mínu, kinnarnar mínar eru farnar að minnka og undirhakan hverfur hægt og rólega, en ég er líka farin að finna og sjá mun á magasvæðinu og að er ofboðslega ljúf tilfinning. Ég er allavega á því að þessi 60þús sem ég er búin að borga fyrir einkaþjálfunina sé vel þess virði og ég hefði ekki getað ímyndað mér betri fjárfestingu en þetta - heilsan mín og vellíðan. 


Undanfarna daga og vikur hef ég mikið verið að kryfja það hvers vegna ég fitnaði á sínum tíma.  Það er hluti af þessu öllu saman. Að skilja ástæðunni fyrir þyngdarbreytingunum og takast á við þær, sama hversu sársaukafullt það getur reynst manni.  Ég byrjaði að fitna þegar mamma og pabbi skildu, og síðan þá hefur þetta verið upp&niður barátta.  Það er yfirleitt eitthvað svona áfall eða dramatískar breytingar í lífinu sem að "triggera" þyngdaraukningu hjá fólki.  Þegar mamma og pabbi skildu tók við ákveðið sorgarferli sem ég held hreinlega að ég hafi verið of ung til að takast á við, skilja og vinna úr.  Ég var bara 10 ára og allt í einu hrundi veröldin mín eins og ég þekkti hana.  Ég þroskaðist og fullorðnaðist mjög hratt á þessum tíma þar sem það voru allt í einu bara ég, mamma og litla systir mín og því varð ábyrgðin að dreifast á mig þar sem að það er langt í frá auðvelt að vera einstæð móðir með tvær ungar stelpur að vinna langa vinnudaga.  Við hjálpuðumst að mæðgurnar til þess að láta lífið ganga eins "eðlilega" og hægt var undir þessum kringumstæðum og þegar uppi er staðið vil ég meina að okkur hafi gengið mjög vel til. Við mæðgurnar höfum gengið saman í gegnum ýmislegt á þessu ferðalagi og í kjölfarið orðið ofboðslega sterk heild þar sem samskiptin einkennast af endalausri og skilyrðislausri ást, vináttu og virðingu. En þetta var ekki auðvelt. Að missa pabba út úr lífinu á þennan hátt þó að hann hafi ennþá verið til staðar, bara öðruvísi - það var erfitt, fyrir pabbastelpuna sem ég var.  Ég varð að sjálsögðu sorgmædd og ég held að það hafi verið þá sem ég byrjaði að borða mér til huggunar. Sem síðan þróaðist út í það að ég borðaði allar tilfinningar mínar, hvort sem það var gleði, reiði, sorg, spenna eða hvað sem er - ég sóttist alltaf í mat. Ástæðan fyrir því að ég sé að ræða þetta hér er einfaldlega til þess að hjálpa mér að skilja. Í dag þarf ég að læra að nota ekki mat til að vinna úr tilfinningum, því að matur gerir það að sjálfsögðu ekki, hann er bara einhvers konar flóttaleið sem veldur enn meiri vanlíðan og tilfinnigarússíbana fyrir mig og þess vegna þarf ég að finna mér eitthvað annað í staðinn.  Mér finnst ræktin mjög góður grundvöllur til þess að fá útrás fyrir tilfinningum.  Ræktin veitir mér gleði og vellíðan og getur verið góð leið til þess að fá útrás fyrir reiði, pirring, áhyggjum og alls konar tilfinningum sem eiga það til að banka upp á hjá okkur öllum. 



Ég ætla ekkert að hafa þetta dýpra í bili, þó að ég sé svo sannarlega að kafa mun dýpra í hausinn á mér en ég deili hér.  Þetta er langt ferðalag sem hefur hingað til verið mjög skemmtilegt og lærdómsríkt.  Ég þarf núna að fara að pakka niður í kassa og byrja að þrífa íbúðina mína því að það er margt á döfinni hjá mér. Ég er að segja skilið við stúdentaíbúðina mína sem ég hef búið í síðastliðið ár og flytja inn til kærastans míns á næstu vikum, þannig að það er margt spennandi að gerast. 
Ég bíð spennt eftir að takast á við næstu viku og ætla að gera það af enn meiri krafti en síðastliðnu vikur, þó að miklum krafti hafi verið eytt í þær. 

Takk í dag & góða helgi <3
xx Jónína

þriðjudagur, 14. október 2014

5:2 fastan og spinning

Hæææ!
Bara eitthvað svona almennt röfl frá mér í dag. Ég ákvað að prófa 5:2 föstuna sem er svo vinsælt í dag.  Vinkona mín er búin að vera á þessu matarræði í næstum tvo mánuði núna og líkaði svo vel þannig að ég ákvað að slá til fyrir tveimur vikum. Fyrstu tveir dagarnir sem ég fastaði voru helvíti, ég hélt ég myndi ekki klára daginn. En svo verður þetta auðveldara. Þetta er ekki þannig að maður megi ekki borða neitt, heldur hefur maður 500kal þröskuld yfir daginn sem maður má skipta eins og manni hentar niður í máltíðir.  Mér finnst best að borða í hádeginu og svo aftur svona ca 5-6 leytið.  Ég hafði svolitlar áhyggjur af því að þetta yrði mjög erfitt þegar maður er að æfa mikið, en ég hef farið tvisvar sinnum á föstu-dögum og tekið tvær æfingar og það hefur ekki verið neitt vesen.  Þannig að ég bíð spennt og hlakka til að sjá hvort að þetta breytir einhverju svona til lengri tíma litið en mér finnst þetta mjög gott til þess að tileinka mér sjálfsstjórn því á þeim dögum sem ég fasta veit ég nákvæmlega hvað ég má og ætla að borða og verð að standa við það því að ég má ekki fara yfir kaloríufjöldann.  Þetta vonandi hefur það svo með sér í för að það verði auðveldara að halda sjálfsstjórninni þegar einhver óhollustulöngun bankar upp á á þeim dögum sem ég er ekki að fasta. 



Ákvað að henda inn einni vel ferskri mynd af mér síðan í dag. Fór s.s. á æfingu hjá þjálfaranum mínum klukkan 9 í morgun og tók þar mjög erfiða æfingu eins og alltaf en ákvað svo að fara í spinning með vinkonu minni klukkan hálf6 í kvöld líka.  Klukkutíma spinning hjá uppáhalds spinningþjálfaranum mínum og það er ekki þurr blettur á líkamanum þegar maður labbar þaðan út.  Ég elska spinning.  Mér finnst ekki rosalega gaman að taka brennsludaga í ræktinni þar sem ég hangi á stigavélinni og skíðavélinni til skiptis að rembast við tímann og að halda það út í klukkutíma.  En þegar maður fer í klukkutíma spinning hefur maður ekkert val, þú ert að brenna allan tímann á fullu í takt við tónlistina og þjálfarann og tíminn líður svo sjúklega hratt.  Þetta er allavega að mínu mati skemmtilegasta leiðin til að taka brennslu, alveg án nokkurs vafa.  Ég þarf reyndar að vera duglegri að taka brennslu eftir lyftingar og reyna að bæta smá hlaupum inn í brennslurútínuna því að ég vil vinna upp almenntilegt "skokk-þol" svo ég geti farið að hlaupa almennilega. Ég er bara að taka svo hrikalega á því í lyftingunum að ég hef varla orku í meira eftir 45-60 mín lyftingarsession að ég vil frekar fara aftur seinna yfir daginn í spinning, sem að hentar mér vel allavega núna en bæti svo hinu við hægt og rólega líka.  

Já, ég er allavega vel peppuð þessa dagana.  Fór í Bónus í dag til að bæta á úrvalið í ísskápnum og ætla svo að elda kjúkling og eitthvað gott meðlæti á morgun til að eiga annað kvöld og á fimmtudaginn. Ég er að vinna á fimmtudagskvöldið og ég finn það að ég verð að venja mig á það að elda nóg til að eiga með mér í vinnuna, því að þar fyrst eru freistngarnar.  Yfirleitt er eldaður svo góður og ekki svo hollur matur, og alltaf til eitthvað til að narta í þannig að ég þarf að passa mig sérstaklega vel þar.  Það hefur gengið misvel, eins og síðustu helgi þá var ég að vinna mjög langar vaktir og var ekki búin að skipuleggja mig nógu vel til að ég ætti með mér nesti fyrir alla dagana og þá er auðvelt að renna út af breinu brautinni.  Ætla þess vegna að taka mig vel til í andlitinu og passa upp á það að eiga alltaf kjúkling eða fisk eða boozt til að taka með mér í vinnuna til að borða í staðinn fyrir að detta í matinn sem er þar á boðstólnum. 

Annars held ég að þetta sé bara komið gott af röfli í dag - þangað til næst - lovjú mamma (þú ert sú eina sem veist af þessu bloggi ;*)

xx Jónína

fimmtudagur, 9. október 2014

Æfing dagsins

Langði bara að setja inn stutta færslu í dag.
Er hrikalega peppuð, var að koma af svakalega erfiðri æfingu hjá einkaþjálfaranum mínum þar sem ég átti líka gott spjall við hana.  Var að fá úr mælingunum mínum eftir fyrsta mánuðinn með henni. Missti 3,9 kg og 1,35% í fitu en ég vildi meira. Þannig að ég mætti á æfingu frekar fúl við sjálfa mig eftir að hafa ekki fengið betri niðurstöður úr mælingunni.  En þjálfarinn minn fullyrti að þetta væri eðlilegt því að líkaminn væri að upplifa ákveðið aðlögunarferli og sjokk þar sem að ég fór frá því að hreyfa mig aldrei og borða mjög óhollt í mjög reglulega hreyfingu og mun hollari fæðu.  Hún sagði jafnframt að ég mætti búast við mun betri tölum eftir þennan mánuðinn - og það er nákvæmlega það se ég ætla að láta gerast.  Ég ætla á eftir að fara að kaupa mér bók og skrá niður allt sem ég borða, þó ég nenni ekki að vigta það allt. Ég held að það sé gott tæki fyrir mig til að fylgjast betur með því sem ég borða og hafa betra aðhald í matarræðinu. Ég veit nefnilega að ég er að gera allt rétt í ræktinni og hreyfingunni en það skilar víst ekki 100% árangri ef að mataræðið er ekki í takti við hreyfinguna. Og ég er spennt yfir þessu, ég veit að ef ég verð sjúklega dugleg mun þetta skila mér tölum sem ég verð sáttari við í lok þessa æfingartímabils.  Ég ákvað nefnilega að taka 1 mánuð í einkaþjálfun í viðbót og mun svo líklegast færa mig yfir í fjarþjálfun eða allavega vigtun hjá henni einfaldlega vegna þess að þetta kostar pening og ég þarf að reyna að spara aðeins.


Í dag tók ég mjög skemmtilega, en ógeðslega erfiða æfingu hjá einkaþjálfaranum.  Hún vildi að við æfðum í dag með svona tabata ívafi, þar sem að maður æfir í 20 sek og hvílir í 10.  Við tókum súpersett, sem eru tvær æfingar til skiptis í 20 sek með 10 sek hvíld á milli og endurtekningin fjórum sinnum.  Ég gerði 5 slík sett og hélt ég myndi annað hvort deyja, æla eða líða yfir mig.  En það var svo gott þegar þetta var búið, ég var svo stolt.  Við erum byrjaðar að bæta þyngd á lóðin mín í öllum æfingum sem ég er að gera, sem er mjög skemmtileg tilfinning.  Eitthvað sem ég hef aldrei upplifað áður því í gegnum tíðina þegar ég hef verið að lyfta hef ég annað hvort verið of góð við mig og ekki haft sjálfsagann í að lyfta þyngra en mér þótti "passa innan þægindarammans" eða þá ég hef ekki tollað nógu lengi í ræktinni í þau skipti og einfaldlega gefist upp áður en ég gat farið að þyngja.  Eitt af settunum voru líka sprettir á hlaupabrettinu í 20 sek og hvíld í 10 sek.  Það er eitthvað sem ég gerði líka hjá þjálfaranum í annarri vikunni minni, nema þá hljóp ég á aðeins minni hraða og var við það að kafna þegar ég var búin að endurtaka hlaupin í 8 skipti.  Þess vegna var svo gaman að sjá að allir spinningtímarnir sem ég hef farið í undanfarnar vikur (vanalega 3-4 á viku) með systur minni eru farnir að borga sig í betra þoli.  Ég er handviss um það að með þessu áframhaldi og ef ég bæti inn smá hlaupum í hverri viku verð ég farin að hlaupa 5 km eftir mánuð eða tvo án þess að deyja við það.  Draumurinn er að geta hlaupið 10 km fyrir afmælið mitt 30.apríl, en það er langtíma markmiðið mitt. Mér hefur alltaf fundist gaman og gott að hlaupa, þegar ég er í formi til þess. Þannig að núna hlakka ég til að komast í betra form svo ég geti farið út að skokka án þess að þurfa sífellt að stoppa til að hvíla mig inn á milli. Það er bara einhvern veginn svo frelsandi tilfinning að geta farið út, sérstaklega á kvöldin, með ipod í eyrunum og hlaupið bara. Hlaupið bara með eigin hugsunum.  Ég fæ gæsahúð bara við tilhugsunina og hlakka til að geta farið að gera það.  

Þetta átti að vera stutt færsla, en varð aðeins of löng. Ætla að demba mér í smá lærdóm og stúss, svo ætla ég að fara í spinningí kvöld með Laufey. Ná síðustu æfingunni með henni áður en hún fer í burtu í 11 daga í sólina helvísk :)

Takk í dag!
xx Jónína

þriðjudagur, 7. október 2014

Að týnast af beinu brautinni...

...það er ótrúlegt hversu auðvelt það er að týnast af beinu brautinni. Ég hef gert það margoft.  Og í hvert skipti sem ég rata inn á hana á ný skil ég ekki hvernig ég gat leyft mér að "týnast". Ég er að sjálfsögðu að tala um það þegar maður er duglegur í ræktinni og matarræðinu og við það að rækta sjálfan sig og þegar maður hættir þvi skyndilega, gefst upp og dettur í ruslfæðið og ruglið aftur.
Það er alltaf jafn gott að byrja í ræktinni aftur. Borða hollt og hugsa um hvað maður setur ofan í sig og líða vel í lok dags eftir erfiðið og ég tala nú ekki um þegar maður fer að sjá árangur erfiðisins.  Þess vegna er ég alltaf jafn hissa þegar ég tek mig til og byrja aftur - afhverju hætti ég þessu? Af hverju kaus ég frekar að hreyfa mig ekki neitt og borða mat sem lét mér líða vel í 5 mínútur en illa restin af deginum, ef ekki vikunni.  Þess vegna er þetta svo mikið spurning um jafnvægi.  Auðvitað koma dagar þar sem að verr gengur og að maður "svindli" smá, en það er ekki ávísun á það að maður eigi bara að hætta og gefast upp.  Það er eitthvað sem ég verð að læra að tileinka mér.



Ég er búin að eiga í þeirri baráttu núna síðastliðinn mánuð.  Það koma dagar sem ég fer upp í rúm að sofa og er sjúklega stolt af mér af árangri dagsins, kannski búin að fara jafnvel tvisvar sinnum í ræktina þann daginn og borða mjög hollt og hóflega. En svo koma líka dagar þar sem mér hefur gengið verr, kannski byrjað vel - farið í ræktina og borðað hollt en endað svo í því að stelast í serrano vefju eða eitthvað. Eða guð hjálpi mér hvað hausinn á mér segir við mig ef ég tek hvíldardag frá ræktinni! Þetta er svo rangt. Ég veit að ég er að gera vel.  Ég veit að ég er að tileinka mér nýjan lífsstíl og auðvitað koma dagar sem ég get ekki haldið 100%. En ég er að mæta. Ég er að gefa allt í þetta.
Þannig að ég ætla bara að vera stolt af mér. Síðasta vika var svona 85% góð. 100 % góð hvað varðar hreyfinguna en kannski svona 75% góð hvað varðar matarræðið. En ég skal lofa ykkur því að sú vika er svona 150% betri en einhver vika sem ég átti í ágúst.

Ég ákvað í september að ég ætlaði að vera edrú allan mánuðinn. Einfaldlega vegna þess að neysla áfengis skemmir árangurinn og hægir á árangrinum og svo veit ég líka að þegar ég vakna daginn eftir djamm er ég ekki hress og langar í ræktina heldur er ég þunn og langar í burger.  Og þessi mánuður var auðveldur - og skemmtilegur.  Ég vaknaði allar helgar hress og til í ræktina, þó ég væri að vinna klukkan 10 eða 12 og ég var aldrei þunn eða löt.  Svo leið september undir lok og þetta "áfengisbindindi" sem ég setti sjálfri mér var búið.  Þannig að ég hafði þá leyfi til að kíkja á djammið svo ég einfaldega bjó mér til djamm - það var ekkert að gerast en ég hóaði í nokkrar vinkonur og við kíktum á djammið. Fékk mér nokkra bjóra og hvítvín, varð smá hífuð, dansaði smá, þurfi svo að sjálfsögðu að stoppa á leiðinni heim og fá mér eina pylsu því að það er jú gott ráð til þess að losna við þynnku morgundagsins, fór seinna að sofa en helgarnar á undan.  Svo vaknaði ég, ekki jafn fersk og helgarnar á undan og hvað kallaði hausinn minn á? Pizzu! Sem ég hafði enga sjálfsstjórn til þess að neita honum um, þannig að ég stimplanði inn velkunnugt símanúmer - 5812345 - pantaði mér pizzu og gos og sporðrenndi því niður með bestu lyst - því að ég var jú þunn, var búin að vera dugleg og nú átti sko aldeilis að leyfa sér! Hvað gerðist? Þetta var að sjálfsögðu alveg jafn gott og mig minnti, en það varði líka bara rétt á meðan á átveislunni stóð og eftir það leið mér illa í maganum, var útblásin og vinur minn hr. Samviskubit var ekki langt undan og hann dvaldi hjá mér restina af deginum.
Þannig að þetta djamm með vinkonum mínum var gaman, pylsan, bjórinn, hvítvínið, pizzan; allt var þetta helvíti gott - en þetta var engan veginn þess virði. Ég held því að ég haldi mig bara við það að vera pínulítið edrú bara áfram. Það er bara kósý og ég bara elska sjálfa mig það mikið að mig langar ekkert að gera mér þetta aftur í bráð, nema þá að það sé eitthvað svakalega sérstakt á döfinni.

En annars gengur vel að kúpla sig út úr helginni og inn í rútínuna aftur. Ég henti hr. Samviskubiti út á sunnudagskvöldið og stillti vekjaraklukkuna á 5:50 og fór í spinning á mánudagsmorguninn, fastaði allan mánudaginn (500kal, ekki alveg fasta) og var svo dugleg og góð við mig í dag í matarræðinu og hreyfingunni. Og svona skal vikan halda áfram, en ég tek einn dag í einu.

Farin að halda áfram að læra - þangað til næst
Djónæn