Dagurinn var líka erfiður að því leyti að ég hugsaði um pizzu og franskar frá því að ég vaknaði. Ég var tvisvar sinnum búin að taka upp símann og næstum panta mér pizzu, en ég náði í bæði skiptin að skella á áður en það var svarað. En ég fór í staðinn og keypti mér 12" subway bát, kristal og súkkulaðihúðaðar kasjúhnetur. Sem er engan veginn í takt við matarræðið undanfarna daga en þó skárra en 12" pizza frá Domino's.
Í dag er ég því að glíma við erfiðið sem fylgir því að hafa samviskubit. En það er kannski alveg eðililegt að upplifa svona daga inn á milli. Bara svo skrítið því að í gær átti ég mjög góðan dag sem endaði þannig að ég mátaði buxur sem ég pantaði mér af netinu í sumar og hef aldrei passað í fyrr enn í gær - allt í einu gat ég hneppt þeim og þær voru ekki þröngar eða óþæginlegar og pössuðu bara svona líka glimrandi. Og í morgun átti ég líka mjög gott augnablik þegar ég steig á vigtina sem að sýndi að það eru 4,4 kg farin á þremur vikum. Þess vegna er svo skrítið að hugsa um það hvernig dagurinn í dag fór og afhverju ég endaði á því að vera uppi í rúmi með samviskubit. En þetta er líka dagur sem ég ætla að muna, eins og þriðjudagurinn sl. sem ég bloggaði um síðast. Því að sú tilfinning í lok dags er mun betri en tilfinningin í lok þessa dags.
En núna ætla ég að hætta að vera með samviskubit og fyrirgefa sjálfri mér. Ég er búin að stilla vekjaraklukkuna kl 09:00 og ætla að fara niður í rækt og taka smá lytingar og svo klukkutíma spinning og taka vinnudaginn af krafti hvað varðar matarræðið. Setja þennan dag í reynslubankann og muna hvað ég var fúl og vonsvikin. Og hvíldardagurinn sem átti að vera á sunnudaginn verður í staðinn bara hrikaleg æfing fyrir vinnu klukkan 10:00. Það hljómar eins og gott plan :)
Ætla að fara að sofa og vakna endurnærð og endurstillt með hausinn á réttum stað á morgun.
xx Jónína

Engin ummæli:
Skrifa ummæli