Ég ákvað að henda út öllum gömlum færslum af þessu bloggi og ég hef hér með ákveðið líka að skammast mín ekki fyrir að viðurkenna að það er einfaldlega vegna þess að ég skammaðist mín pínulítið yfir því að þurfa að byrja enn eina færsluna á "aftur á byrjunarreit..." eða eitthvað í þeim dúr. Þær hafa nefnilega verið ófáar þannig færslurnar upp á síðkastið. En eins og allir vita sem einhvern tímann hafa þurft að glíma við ofþyngd og matarfíkn - er þetta ekki auðvelt, þetta er endalaus barátta þar sem sigrar eru unnir en stríð einnig töpuð. Og þannig hefur þetta rúllað hjá mér undanfarin 5-6 ár. Ég hef sigrað og ég hef tapað. Ég hef misst helling af kg-um og cm en bætt þeim svo aftur á mig og gott betur en það í hvert skiptið. Ég er skólabókardæmi um svokallað "jójó-feitabollu", þó svo að ég kalli sjálfa mig það ekki dags daglega, að sjálfsögðu ekki. Og þar kem ég að titli þessarar færslu - "að elska sjálfan sig".
Undanfarnar vikur hef ég lært smátt og smátt að elska sjálfa mig. Ég byrjaði í enn einu átakinu í lok ágúst. Það gerðist þannig að eitt laugardagskvöldið í byrjun ágúst var ég ein heima, klukkan var orðin ca 2 um nótt og ég var að reyna að sofna en gat ekki sofnað vegna þess að ég var of mikið að hugsa um lífið og sjálfa mig. Þá komst ég að því að ég hafði loksins náð botninum. Ekki misskilja mig, ég var ekki þunglynd eða slíkt, og hef oft verið þyngri en ég var á þeim tímapunkti en ég hugsaði sem svo að núna vildi ég breytingu til frambúðar. Eftir að hafa planað og ímyndað mér næstu 12 mánuðina fram í tímann eins og manni hættir oft til setti ég mig í samband við einkaþjálfara sem ég hafði um vorið verið í fjarþjálfun hjá og kunnað svo ofboðslega vel við. Hún var þá í sumarfríi en sagðist getað tekið mig í mælingu í lok ágúst og væri laus til að taka mig í einkaþjálfun ef ég hefði áhuga. Ég tók þess vegna þá stóru ákvörðun að fjárfesta í heilsunni og borga fyrir einkaþjálfara, eitthvað sem ég hef aldrei þorað að gera áður, einfaldlega vegna þess að hingað til hef ég verið of góð við sjálfa mig og ekki viljað skora almennilega á mig.
28.ágúst mætti ég því í mælingu til hennar og 4.september fór ég í fyrsta tímann til hennar. Ég mætti í upphitun, sjúklega peppuð og til í þetta og ég nánast bókstaflega skreið út úr þessum fyrsta tíma með bros á vör. Þarna hafði fyrsta markmiðinu verið náð - sem var einfaldlega; að mæta & að framkvæma. Síðan þá hef ég mætt til hennar í herbúðir eins og ég kýs að kalla það tvisvar í viku og verið svo dugleg hina dagana að mæta í ræktina og taka brennslu og lyftingar. Ég sé ofboðslegan mun á mér en það sem er miklu skemmtilegra er hversu mikinn mun ég finn á mér. Í dag átti ég svo ofboðslega sérstakt augnablik. Ég mætti á æfingu til hennar klukkan 9 og hún ýtti mér lengra en hún hefur nokkurn tímann ýtt mér og ég gerði hluti sem ég hefði aldrei látið mér dottið í hug að dreyma um að ég gæti gert. Ég man í einni æfingunni sagði ég við hana "þú ert svo yndislega brjáluð að láta þér detta það í hug að ég geti gert þetta" - hún hló og sagði mér að kýla á það! Sem og ég gerði - þrisvar sinnum. Ég fór af æfingunni eftir klukkutíma og út í bíl og ég var gráti næst þegar ég settist inn í bílinn. Á þremur vikum hef ég komist lengra en ég hef nokkurn tímann komist áður. Og það sem meira er, þó ég hafi tekið mest brutal æfingu í lífi mínu í morgun, þá fór ég í 45 mín spinning í hádeginu með Laufey í þokkabót. Þannig að í dag er ég stolt.
Hausinn á manni virkar á svo ofboðslega sérstakan hátt. Maður er svo fljótur að segja sér að maður geti ekki eitthvað án þess að láta á það reyna. Þetta er hugarfar sem ég er hægt og rólega að breyta og það gerir mér svo gott. Ég get í fullri hreinskilni sagt að í fyrsta skipti á ævi minni er ég að fara í ræktina algjörlega fyrir mig sjálfa og í hvert skipti er ég spennt og finnst ofboðslega gaman af. Af því að ég elska sjálfa mig og ég vil verða að bestu mögulegu útgáfu af sjálfri mér sem ég get orðið. Ég á misgóða daga, að sjálfsögðu. Ég á daga sem mig langar sjúklega mikið í pizzu og þarf að berjast til að halda mér frá því. Ég á daga sem ég er ekki nógu dugleg að borða nógu oft. Ég á daga þar sem matarræðið mitt er fullkomið. Ég á líka daga þar sem það er ekki alveg fullkomið en ég ákveð að brjóta mig ekki niður fyrir vikið og halda að það sé allt ónýtt.
Lífið er gott í dag. Ég er gríðarlega hamingjusöm og komin svo miklu lengra í þessu ferðalagi en mig grunaði að ég yrði komin eftir aðeins þrjár vikur. Og nú er bara að halda áfram. Ég er loksins farin að sjá það á vigtinni að ég sé að léttast, en það tekur tíma og ég finn hvað ég er að styrkjast gífurlega. Mig langaði bara að skrifa þetta niður í blogg fyrir sjálfa mig, svo ég muni eftir þessum degi. Þetta blogg er gott verkfæri fyrir mig sjálfa til að fylgjast með mér og fá útrás þegar vel gengur og líka þegar illa gengur - því að ég veit alveg að það verða ekki allir dagar eins og dagarnir í dag. En ég ætla að njóta hans það sem eftir er af deginum :)
xx Jónína

Engin ummæli:
Skrifa ummæli