þriðjudagur, 11. nóvember 2014

Á svo góðu róli :)

Langt síðan að ég hef skrifað eitthvað hér inn - en þegar að það hefur gerst að undanförnu þá þýðir það yfirleitt að ég hef misst dampinn og hætt í yfirstandandi átaki þess tímabils.  En það er nú aldeilis ekki raunin í þetta skiptið, ég er bara búin að vera svo upptekin síðustu vikur að það hálfa væri nóg.

Ég kláraði síðasta tímann minn með einkaþjálfaranum á síðasta fimmtudag. Það voru blendnar tilfinningar sem fylgdu því.  Leiðinlegar að því leytinu til að ég á eftir að sakna hennar mikið því að hún hefur gert svo ofboðslega mikið fyrir migá þessum tveimur mánuðum að ég er varla að trúa því.  Hún er æðislegur þjálfari sem hefur komið mér lengra en mér datt í hug að væri nokkurn tímann mögulegt. En svo er einmitt líka gaman að kveðja hana með það í nestispokanum hversu ótrúlega langt ég hef komist á ekki lengri tíma en þetta og að ég sé tilbúin til þess að tækla framhaldið sjálf með öll verkfærin sem hún hefur kennt mér og hugarfarið sem ég hef skapað sjálfri mér.
Ég fór því í mælingu hjá henni áður en við tókum hrikalega vel á því í þessum síðasta tíma til þess að kóróna þetta tímabil sem ég hef verið að æfa hjá henni.  Ég fékk svo niðurstöðurnar úr mælingunni í gær og ég táraðist því ég var svo sjúklega ánægð með niðurstöðurnar.  Ég er reyndar ekki búin að leggja saman hversu marga cm ég náði að skafa af mér en þeir eru þó nokkuð margir, ég missti 13 kg af fitu og bætti á mig 6 kg-um af vöðvamassa og minnkaði fituprósentuna mína um heil 10% á þessum tveimur mánuðum (þar af 7% bara í seinni mánuði).  Þannig að ég var ein hamingjusöm kona þegar ég fékk þetta svart á hvítu að æfingarnar og breyttur lífsstíll væri svo sannarlega að skila árangri.  Þannig að núna er ekkert annað í stöðunni en að halda ótrauð áfram og ná markmiðum mínum og komast í gott form og líða ennþá betur í eigin skinni!

En það var líka annað virkilega jákvætt sem að ég upplifði núna á síðustu dögum.  Ég fór í ræktina á sunnudaginn síðastliðinn, sem er yfirleitt hvíldardagur hjá mér en ákvað að hendast aðeins í ræktina og taka létta skokkæfingu fyrir vinnu.  Ég hef ekki mikið verið að skokka á hlaupabrettinu vegna þess að ég hef eiginlega bara verið að lyfta og að fara í spinning þannig að ég hafði eiginlega ekki hugmynd um það hvernig þessi æfing yrði.  Ég fór 3 km um daginn einhvern tímann bara á einhverju voða skokki og var bara frekar sátt við það.  En þennan morguninn langaði mig að athuga hversu lengi það tæki mig að skokka 5 km, og ef að ég gæti það yfirhöfuð þá algjörlega án þess að stoppa neitt til að hvíla mig á milli.  Ég fór af stað, stillti brettið á 7 eins og ég hef verið að skokka á undanfarið en fann fljótt að það var orðinn of hægur taktur fyrir mig þannig að ég prófaði að setja hraðann í 9.  Þannig skokkaði ég í þó nokkurn tíma og áður en ég vissi af var ég komin í 3 km þannig að ég husgaði með mér að ég gæti vel klárað 5 km og það á ágætis tíma.  5 kílómetarnir voru því hlaupnir og það á 33:25 mín sem að ég verð að telja nokkuð gott fyrir algjöran byrjanda og miðað við það að þegar ég byrjaði að hreyfa mig fyrir rétt rúmum 2 mánuðum fór ég á hlaupabrettið og skokkaði í 3 mín og labbaði 2 til skiptis og var við það að láta lífið ég var svo móð og þetta var svo erfitt. Núna langar mig því svolítið að einbeita mér að því að bæta skokkþolið mitt enn betur og markmiðið er sett á að geta klárað 10 km fyrir páska!
Þessa mynd tók ég eftir 5 km - vel sátt eins og sést greinilega. 

Þannig að ég er s.s. bara í mjög góðu jafnvægi og í góðum fíling.  Næ að halda matarræðinu svona 80-90% góðu og það er ég svo sannarlega sátt við, því að ég gæti þetta ekki ef að ég ætlaði að fara að setja boð og bönn á allt saman, þá væri þetta leiðinlegt og ég myndi fljótt gefast upp. 

Ætla ekkert að hafa þetta lengra í bili.  Það veit ennþá enginn af þessu bloggi, sem kann að þykja frekar kjánalegt en mér finnst gott að skrifa hér hvernig ferðalagið gengur svo ég geti flett upp á jákvæðum færslum ef mér gengur eitthvað illa að koma mér af stað í ræktinni eða á slæma daga.

xx Jónína ofurstolta!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli